Vinir Snæfellsjökuls HollvinasamtökHollvinasamtök Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls í samstarfi við Þróunarfélags Snæfellinga og Umhverfisstofnun boða til fundar um stöðu og framtíðarhorfur í starfsemi Þjóðgarðsins.
Fundurinn verður í Hótel Hellissandi  14. mars og hefst kl.15.00

Aðal umfjöllunarefni frummælenda verður þetta: Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull, umhverfismál, rannsóknir innan marka þjóðgarðsins og á Snæfellsnesi, horfur í ferðaþjónustu árið 2014 og framlag Þjóðgarðsins í þágu landkynningar og ferðaþjónustu á Snæfellsnesi.

  1. Setning og stutt ávarp. Sturla Böðvarsson formaður stjórnar Hollvinasamtakanna Vinir Snæfellsjökuls.
  2. Umhverfismál og hlutverk Þjóðgarða. Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar.
  3. Starfsemi Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls árið 2013 og áætlun um starfið 2014. Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóðgarðsvörður.
  4. Hlutverk þjóðgarða við að efla landkynningu í þágu ferðaþjónustunnar á Íslandi. Elías Bj. Gíslason  settur ferðamálastjóri.
  5. Kaffihlé
  6. “Þjóðgarðar í þágu þeirra” – Hvað þarf til?  Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
  7. Rannsóknir á vegum Náttúrustofu Vesturlands í Þjóðgarðinum og á Snæfellsnesi Róbert A. Stefánsson forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands.
  8. Fornleifarannsóknir í Þjóðgarðinum. Magnús A. Sigurðsson minjavörður og  Lilja Björk Pálsdóttir fornleifafræðingur.
  9. Náttúruperlan Vatnshellir. Ferðaþjónusta innan Þjóðgarðs. Þór Magnússon hellaleiðsögumaður og rekstraraðili Vatnshellis.
  10. Fyrirspurnir og umræður

Fundarslit verða fyrir kl.19

Posted in: Fréttir     (0 comments)

Deila