Hollvinasamtök Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls í samstarfi við Þróunarfélags Snæfellinga og Umhverfisstofnun boða til fundar um stöðu og framtíðarhorfur í starfsemi Þjóðgarðsins.
Fundurinn verður í Hótel Hellissandi 14. mars og hefst kl.15.00
Aðal umfjöllunarefni frummælenda verður þetta: Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull, umhverfismál, rannsóknir innan marka þjóðgarðsins og á Snæfellsnesi, horfur í ferðaþjónustu árið 2014 og framlag Þjóðgarðsins í þágu landkynningar og ferðaþjónustu á Snæfellsnesi.
- Setning og stutt ávarp. Sturla Böðvarsson formaður stjórnar Hollvinasamtakanna Vinir Snæfellsjökuls.
- Umhverfismál og hlutverk Þjóðgarða. Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar.
- Starfsemi Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls árið 2013 og áætlun um starfið 2014. Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóðgarðsvörður.
- Hlutverk þjóðgarða við að efla landkynningu í þágu ferðaþjónustunnar á Íslandi. Elías Bj. Gíslason settur ferðamálastjóri.
- Kaffihlé
- “Þjóðgarðar í þágu þeirra” – Hvað þarf til? Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
- Rannsóknir á vegum Náttúrustofu Vesturlands í Þjóðgarðinum og á Snæfellsnesi Róbert A. Stefánsson forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands.
- Fornleifarannsóknir í Þjóðgarðinum. Magnús A. Sigurðsson minjavörður og Lilja Björk Pálsdóttir fornleifafræðingur.
- Náttúruperlan Vatnshellir. Ferðaþjónusta innan Þjóðgarðs. Þór Magnússon hellaleiðsögumaður og rekstraraðili Vatnshellis.
- Fyrirspurnir og umræður
Fundarslit verða fyrir kl.19